hirly
Likely filled

This role has closed. Ossur has taken the posting down.

hirly last saw it live on 8 November 2026. See similar open roles below, or browse the live board.

Ossur

Renniverkstæði - Lagerstarf

Reykjavík, Iceland

hirly's read of this role

Seniority
Mid level
Country
IS
Work mode
On-site / unstated
First seen by hirly
26 Oct 2026

Derived automatically from the posting.

the posting

Langar þig að vera hluti af öflugu og spennandi teymi innan stoðtækjaframleiðslu Össurar?

Össur leitar að öflugum og metnaðarfullum aðila í starf á lager fyrir renniverkstæði.

Viðkomandi mun starfa við móttöku, meðhöndlun og afhendingu á hráefni á lager og því er nauðsynlegt að viðkomandi sé sjálfstæður í vinnubrögðum, með góða samskiptahæfni.

Við leitum að jákvæðum og drífandi einstaklingi sem er til í að vera góður liðsfélagi og ganga í öll verkefni sem þörf er á hverju sinni.

Hjá Össur starfar fjölbreyttur hópur fólks og hvetjum við öll sem uppfylla hæfnikröfur og hafa áhuga á starfinu til að sækja um, óháð kyni.

Umsóknarfrestur til og með 9. nóvember 2026.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Móttaka á hráefni
  • Samantekt og meðhöndlun á hráefni
  • Önnur tilfallandi verkefni tengd lager

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Reynsla af lagerstörfum er æskileg
  • Reynsla af birgðarhaldi er kostur
  • Lyftarapróf er kostur
  • Almenn tölvukunnátta, þekking á BC/Navision er kostur
  • Þjónustulund, jákvæðni og góð samskiptahæfni
  • Skipulagshæfni þarf að vera góð
  • Frumkvæði og hæfni til að starfa bæði sjálfstætt og í teymi
  • Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti er skilyrði
Original posting on Ossur's site ↗

Listed on hirly, a job board. hirly is not the employer: Ossur is hiring for this role.